Það er að byrja aftur hittingar fyrir foreldra 25 ára og yngri í Hinu Húsinu.
Þetta verður alveg nýr hópur eftir áramótin svo það er upplagt að byrja að koma núna þegar allir eru nýir. Það er um að gera að byrja að mæta óléttar til að kynnast öðrum verðandi foreldrum.
Við hittumst í Hinu Húsinu á miðvikudögum á milli kl 14-16.
Það hefur margt verið brallað síðustu ár og við höfum fengið
skemmtilega gesti. Hugmyndin er að aðra hverja viku fáum við gesti og
hina vikuna þá erum við að spjalla saman um allt og ekkert. Aðalega
bumbur og börn samt. Við höfum fengið til okkar marga sérfræðinga í
t.d. matarráðgjöf fyrir börn, svefnráðgjöf, ljósmæður, kynlífsfræðing,
geðhjúkrunarfræðing, skyndihjálp fyrir ungabörn, ungbarnanudd, ráðgjafa
frá leikskólasviði, hreyfing og mataræði móður, tónagull kom með
tónlist fyrir börn, við saumuðum hringjasjöl og margt fleira. Það er
síðan um að gera að láta sér detta eitthvað fleira í hug.
Við hittumst og ákveðum saman hvað þið hafið mestan áhuga á að kynna
ykkur nánar. Það er að sjálfsögðu frítt að mæta á allar kynningar og
annað í Hinu Húsinu.
Þetta er búið að vera rosalega gaman og ég vona að við finnum
einhverjar hressar stelpur til að vera með í ár. Pabbar líka velkomnir.