Unglist Plaköt - opnun í Gallerí Tukt
Nemendur á 1. ári í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands standa fyrir samsýningu í Gallerí Tukt sem opnar á morgun, laugardaginn 15. maí. Opnunin hefst kl 16 og stendur til 18 og er öllum, ungum sem öldnum velkomið að kíkja við.
Á sýningunni má sjá tillögur nemenda um plakat fyrir Unglist, listahátíð ungs fólks árið 2010. Sýningin mun standa frá 15/05-29/05, gestir og gangandi geta skoðað sýninguna alla virka daga milli 9-17.