Um Hitt Húsið

 Hitt Húsið var opnað árið 1991 eftir að hugmyndin að tómstundaaðstöðu fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára hafði legið á borðum Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur um nokkurt skeið.
 
Í fyrstu var Hitt Húsið staðsett í gamla skemmtistaðnum Þórskaffi í Brautarholti og var að mestu leyti rekið sem dansstaður fyrir ungt fólk. Fljótlega kom þó í ljós að ungt fólk vildi aðstöðu fyrir innihaldsríkari og uppbyggilegri starfsemi á sviði lista, menningar og fræðslu. Frá þeim tíma hefur Hitt Húsið smám saman tekið á sig þá mynd að vera menningar- og upplýsingarmiðstöð þar sem ungu fólki er veitt ýmis aðstoð og ráðgjöf, t.d. ráðgjöf til að koma hugmyndum sínum til framkvæmdar.

Markmið Hins Hússins eru:

  • Að veita ungu fólki aðstöðu og aðstoð við að koma hugmyndum sínum í framkvæmd.
  • Að endurspegla menningu ungs fólks.
  • Að veita upplýsingar og leiðbeina ungu fólki, í samstarfi við aðra fagaðila og samtök.
  • Að vera miðstöð ungs fólks í leit að sumarstarfi.
  • Að vera vettvangur fyrir félagsleg úrræði og ráðgjöf fyrir ungt fólk.

Almennur opnunartími Hins Hússins (ekki talin með dagskrá ýmissa hópa s.s. Sérsveitarinnar)

Mánudagur
09:00 - 17:00
Þriðjudagur
09:00 - 22:00
Miðvikudagur
09:00 - 17:00
Fimmtudagur
09:00 - 17:00
Föstudagur
09:00 - 17:00
Laugardagur

Sunnudagur



 
Hitt Húsið
Pósthússtræti 3-5, 101 Reykjavík
s: 411 5500
fax: 411 5501