Ráðgjöf & stuðningur
Í Hinu Húsinu stendur ungu fólki ýmis ráðgjöf og stuðningur til boða. Þetta starf er í stöðugri mótun eftir þörfum samfélagsins og þörfum ungs fólks. Störf deilarinnar eru margvísleg en hún er fyrst og fremst til staðar fyrir ungt fólk sem þarf á að halda stuðningi, fræðslu og/eða ráðgjöf.
Við skipuleggjum ýmis félagsleg verkefni sem eiga erindi við ungt fólk hverju sinni, svörum fyrirspurnum og upplýsum ungt fólk um þau félagslegu úrræði sem eru í boði í samfélaginu. Til að ná þessu fram þá þurfum að vera í góðu samstarfi við fagaðila og stofnanir Reykjavíkurborgar. Ráðgjafar- og stuðningsstarfið í Hinu Húsinu er m.a. unnið í samstarfi við hinar ýmsu opinberu stofnanir Reykjavíkurborgar og í samstarfi við einkaaðila.
Hlutverk okkar er að vera vettvangur fyrir opna umræðu og gagnvirka samvinnu sem er okkar leiðarljós.
Helstu verkefni:
Almenn verkefni eru almenn ráðgjöf, Tótalráðgjöf, Jafningjafræðslan, Brú milli mennningarheima, Ungt fólk með ungana sína, hópastarf fyrir félagslega einangraða unglinga, Klár í kreppu og ýmis þátttaka í samstarfsverkefnum erlendis sem og ásamt öðrum tilfallandi verkefnum sem upp koma hverju sinni. Það er hægt að skoða nánar hvert verkefni fyrir sig hér vinstra megin á síðunni.
Við hvetjum ungt fólk og aðstandendur til að leita til okkar og nýta sér þá þjónustu sem við bjóðum upp á.
Við tökum vel á móti ykkur.