Fimmtudagsforleikur
FIMMTUDAGSFORLEIKUR Hins Hússins.
Fimmtudagsforleikur Hins Hússins er tónleikaröð sem er hugsuð sem vettvangur fyrir ungt fólk á aldrinum 16 til 25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri jafnframt því að fá reynslu í því að sjá um tónleika. Tónleikaraðirnar byggja á hugmyndafræðinni að; útvega aðstöðu og tækjabúnað til tónleikahalds og búa með því til vettvang í samstarfi við ungt tónlistarfólk þar sem að það getur öðlast reynslu í öllum hliðum þess að sjá um tónleika og því að koma tónlist sinni á framfæri.
Svo að nú er bara að byrja á að æfa sig og skrá sig síðan til þátttöku. Nú er um að gera að að fylla út umsókn (sækja word-skjal uppi hægra megin á síðunni) sem fyrst því kvöldin eru fljót að fjúka!
Haustdagskrá Fimmtudagsforleiksins 2009 inniheldur amk.8 tónleika en þeir eru á eftirfarandi dögum:
17.9 Mikado + gestir, 24.9 Bypass + Captain Fufanu ,1.10 The Vulgate + gestir, 8.10 In Samsara, 22.10 The Sleeping Prophets, 29.10 Swive, 19.11 BOBA og 26.11 Draumhvörf.
Unglist verður síðan 6-14 nóvember og fellur forleikurinn niður á meðan.
Við byrjum síðan fersk aftur að vori 2010 með Fimmtudagsforleikinn á eftirfarandi kvöldum:
7.jan Yoda Remote,14,21,28. janúar laust / 4,11,18,25.febrúar laust / 4,11.mars laust og 8,15,28.apríl laust.
Músíktilraunir 2010 verða haldnar frá 19.-22. mars (undankvöld) og úrslitin þann 27.mars. Forleikurinn fellur niður á þeim tíma. Athugið að dagsetningar fyrir Músíktilraunirnar eru óstaðfestar!