Músíktilraunir

Markmið:

- Að veita ungum íslenskum hljómsveitum og tónlistarfólki tækifæri á að koma tónlist sinni á framfæri.

- Að skapa vettvang fyrir unnendur tónlistar til að geta fylgst með ungum og efnilegum hljómsveitum og tónlistarfólki.

- Að stuðla að því að fjölmiðlar skapi umræðu og kynningu í samfélaginu á ungu og upprennandi tónlistarfólki.

 

-Þar sem að ÍTR hefur staðið fyrir Músíktilraununum frá upphafi var sú nýlunda árið 2009 að Frístundamiðstöðvar í Reykjavík hafa heimild til að senda 1. fulltrúa hver frá sér í keppnina.  Er það til að virkja og hvetja ungt fólk í hverfum Reykjavíkur til tónlistariðkunar og þátttöku í Músíktilraununum. Frístundamiðstöðvarnar halda undankeppni til að velja sinn fulltrúa.   Þetta útilokar þó ekki þátttöku annarra hljómsveita/tónlistarmanna úr hverfum Reykjavíkur til að sækja um á Músiktilraununum.
 

Reglur:

1. Hljómsveit þarf að skila af sér:

 

- Útfylltu skráningarblaði

 

- Geisladisk/MP3/tölvutæku formi með 2 frumsömdum lögum.

 

- Mynd af hljómsveit - á tölvutæku formi. Merkja vel öll nöfn í réttri röð.

 

- Texta um hljómsveit

 

- 6.000 kr. Þátttökugjald 2009.(endurskoðað á hverju ári)

 

Skráningarblað, upptökur, mynd og þátttökugjald verður að hafa borist  Músiktilraununum fyrir 13. mars. Allt þetta er hægt að gera gegnum rafræna skráningarblaðið á vef tilraunanna, www.musiktilraunir.is

 

 

 2. Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja 2 frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur.

 

3. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit 3 frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12 -15 mínútur.

 

4. Hljómsveit má ekki hafa gefið út efni sitt á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu.

 

 

- Talað er um útgáfu þegar efni er selt og markaðsett skipulega fyrir almenning.

 

- Ekki er um útgáfu að ræða þegar efni er eingöngu notað sem gjafir, þrátt fyrir að það sé á geisladisk, plötu eða hljóðsnældu eða eftir hljómsveit hefur eingöngu komið út á safnplötu.

 

-Sökum þess hversu auðvelt er að útbúa og dreifa tónlist í gegnum netið telst það ekki til útgáfu og er því leyfilegt.

 

 

5. Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum þátttöku ef:

 

- Sýnishorn það sem berst á MP3/tölvutæku formi, stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar.

 

- Þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma.

 

- Af öðrum ástæðum.

 

 

6. Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna starfsmönnum Hins Hússins það strax.

 

7.ATH! notkun áfengis og annarra vímugjafa er stranglega bönnuð og verði þáttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.

 

 

Upplýsingar í HINU HÚSINU: símum 411-5527 eða menning@hitthusid.is og musiktilraunir@hitthusid.is

Heimasíður:

 

www.musiktilraunir.is

og

www.hitthusid.is

 

 

Öðru undankvöldi Músíktilrauna lokið

Í gærkvöldi lauk öðru undankvöldinu í Músíktilraunum í Óperunni. Það voru um 200 manns sem komu og fylgdust með þeim ellefu hljómsveitum sem kepptu um að komast á úrslitakvöldið. Dómnefndin kaus hljómsveitina Hydrophobic Starfish áfram og áhorfendur völdu Snjólugt. Þessar tvær eru því komnar áfram á úrslitakvöldið 27. mars.

[ MEIRA ]

Þriðja undankvöldi Músíktilrauna lokið

Í gærkvöldi lauk þriðja undankvöldinu í Óperunni. Var það mál manna að þetta hafi verið ansi sterkt undankvöld og margar hljómsveitir hefðu átt skilið að komast áfram. Áhorfendur völdu hljómsveitina The Assassin of a beautiful brunette og dómnefndin valdi Feeling Blue.

Við minnum hins vegar á að það er ennþá möguleiki fyrir þær hljómsveitir sem ekki hafa verið valdar áfram hingað til af undankvöldunum því það verða a.m.k. 10 hljómsveitir sem keppa á úrslitakvöldinu. Tvær hljómsveitir fara áfram af hverju af fjórum undankvöldunum og svo er ennþá pláss fyrir tvær (jafnvel þrjár) hljómsveitir sem dómnefndin mun hafa samband við. Það munu því einhverjar hljómsveitir fá símtal frá dómnefndinni eftir að undankvöldunum lýkur og verða boðið að taka þátt í úrslitakvöldinu!
 
[ MEIRA ]

Fjórða og síðasta undankvöldi Músíktilrauna lokið

Þá er öllum undankvöldunum lokið í Músíktilraunum árið 2010. Það voru tvær hljómsveitir sem komust áfram í gær eins og áður og í þetta skiptið voru það hljómsveitirnar Fimbulþul sem var valin af dómnefndinni og Of monsters and men sem valin var af áhorfendum.
 
Að auki hefur dómnefndin valið þrjár hljómsveitir sem munu komast á úrslitakvöldið en það eru hljómsveitirnirnar Dólgarnir, Lucky Bob og GÁVA 
[ MEIRA ]