Unglist


UNGLIST - LISTAHÁTÍÐ UNGS FÓLKS

Unglist-Listahátíð ungs fólks hefur verið árviss viðburður á haustdögum síðan 1992. Hátíðin hefur staðið yfir í rúma viku í hvert sinn með fjölda þátttakenda og njótenda. Unglist hefur alla tíð verið starfrækt í tengslum við Hitt Húsið. Dagskráin samanstendur af tónlist, hönnun, tísku, ljósmyndun, myndlist og leiklist svo að eitthvað sé nefnt. Hátíðin hefur endurspeglað það helsta sem hefur verið í gangi í listsköpun hjá ungu fólki.

Meginmarkmið Unglistar er að allir menningarkimar fái tækifæri á að koma listsköpun sinni á framfæri. Aðgangur er ókeypis á alla viðburði Unglistar og eru allir velkomnir. Dagskráin er auglýst á www.hitthusid.is sem og á plakötum sem dreift er víðsvegar um borgina.

Á Unglist er alltaf allt brjálað og hver listviðburðurinn á fætur öðrum skýtur upp kollinum. Rokk, popp, sveifla, tíska, list, list, list. Unglist verður haldin 06.-14. nóvember árið 2009. 
 
Nánari upplýsingar varðandi Unglist má fá hjá Menningardeild Hins Hússins í síma: 411 5526

 

Dagskráin 2009

Unglist Plaköt - opnun í Gallerí Tukt

Nemendur á 1. ári í grafískri hönnun í Listaháskóla Íslands standa fyrir samsýningu í Gallerí Tukt sem opnar á morgun, laugardaginn 15. maí. Opnunin hefst kl 16 og stendur til 18 og er öllum, ungum sem öldnum velkomið að kíkja við.
 
Á sýningunni má sjá tillögur nemenda um plakat fyrir Unglist, listahátíð ungs fólks árið 2010. Sýningin mun standa frá 15/05-29/05, gestir og gangandi geta skoðað sýninguna alla virka daga milli 9-17.
 
 
[ MEIRA ]