Ertu með hugmynd?
Þriðjudagsþreifingar er heiti yfir nýjan opnunartíma í Hinu Húsinu á þriðjudögum. Opið er til 22:30 og er það hugsað til að ungu fólki gefist færi á að nýta húsið á þeim tíma sem þeim hentar, þ.e. eftir skóla eða vinnu, fram á kvöld.
Fjölbreytt dagsskrá er á þessum kvöldum, þar má nefna kvikmyndasýningar, tónleika, hugleiðslu og kynningar o.fl.
Við viljum að hugmyndirnar komi frá unga fólkinu. Því spyrjum við, ert þú með hugmynd?
Við hjálpum þér að framkvæma hana. Hitt Húsið útvegar aðstöðuna, starfsfólkið til að hjálpa þér og þau tæki og tól sem til eru í húsinu t.a.m. allar græjur til tónleikahalds, skjávarpa, hljóðkerfi o.fl.
Ef þú ert á aldrinum 16-25 ára og hefur áhuga á að nýta þér húsið á þriðjudagskvöldi þá endilega hafðu samband í síma 411-5500 eða sendu tölvupóst á
hitthusid@hitthusid.is