Hitt Húsið til þjónustu reiðubúið

 
Í Hinu Húsinu er fjöldi rýma sem hægt er að nota undir ýmiskonar starfsemi.
 
Hér má finna fullbúinn tónleikasal, sal sem hentar vel undir dans, jóga og annars konar hreyfingu, rými sem nýtist vel fyrir fundi, fyrirlestra og kvikmyndasýningar, til staðar eru m.a. skjávarpi og hljóðkerfi og hér má einnig finna eldhús.
 
Ef þú ert á aldrinum 16-25 ára og hefur áhuga á að nota rými hússins fyrir félagsstarf af einhverju tagi þá endilega hafðu samband í síma 411-5500 eða sendu tölvupóst á hitthusid@hitthusid.is.