Hagnýtar upplýsingar
Viðtalið
Að vera boðaður í viðtal er fyrsti sigurinn í atvinnuleitinni. Flestir finna fyrir stressi fyrir atvinnuviðtalið, en góður undirbúningur hjálpar þér að slaka á og eykur á sjálfstraustið.
Hvernig eru þeir valdir úr sem fara í viðtal?
Val á umsækjendum fer þannig fram að skoðuð er ferilskrá umsækjenda og þeir umsækjendur valdir út sem uppfylla hæfniskröfur til starfsins samkvæmt auglýsingu og ósk fyrirtækis.
Þegar búið er að velja þann hóp umsækjenda sem til greina kemur fara fram viðtöl hjá fyrirtækinu þar sem undirstrikuð eru þau atriði sem fram komu í auglýsingu.
Af hverju tekur þetta svona langan tíma?
Ráðningaferlið tekur mislangan tíma, allt frá nokkrum dögum jafnvel upp í mánuð.
Fjölmargar ástæður liggja þar að baki. Meðal ástæðna má nefna mikinn fjölda umsækjenda, annríki stjórnenda sem eru að ráða starfsfólk, ítarlega upplýsingaleit um umsækjendur ofl.
Ýmsar upplýsingar
Undirbúningur fyrir atvinnuviðtal
Að vera boðaður í viðtal er fyrsti sigurinn í atvinnuleitinni. Flestir finna fyrir stressi fyrir atvinnuviðtalið, en góður undirbúningur hjálpar þér að slaka á og eykur á sjálfstraustið.
Ráðningarferlið
Við ráðningu nýs starfsmanns er farið eftir ákveðnu ferli sem gæti verið eitthvað á þessa leið:
1. Starfið auglýst
2. Áhugasömum veittar upplýsingar um starfið
3. Hæfustu umsækjendur boðaðir í viðtöl
4. Atvinnurekandi tekur viðtöl við umsækjendur
5. Haft er samband við meðmælendur
6. Gengið frá ráðningu
7. Öllum sumsækjendum svarað
Ráðningarsamningar
Atvinnurekandinn sér um að gera ráðningasamninginn. Við gerð ráðningasamningsins verður viðkomandi atvinnurekandi að fara í einu og öllu að gildandi lögum, kjarasamningum og stofnanasamningum. Ráðgjafar eru í stéttarfélögunum sem gæta þess að atvinnusamningar séu réttir.
Ráðningasamningur á að vera gerður í þríriti og skulu ráðningaraðilar og starfsmaður undirrita öll þrjú ritinn. Frumritið fer síðan til launadeildar, annað til starfsmannsins og þriðja til yfirmannsins. Launadeildin gengur ekki frá skráningu fyrr en ráðningin er fullgild, undirritað frumrit ráðningasamnings hefur borist til þeirra (færð ekki greidd laun fyrr en samningur er fullgildur).