Vítamín
Vítamín
Námskeið fyrir ungmenni í atvinnuleit
Vítamín-námskeiðið er hugsað sem einskonar fyrsta hjálp fyrir atvinnulaus ungmenni á aldrinum 17-20 ára, sem hafa tiltölulega nýlega misst vinnuna.
Á námskeiðinu verður farið yfir ýmis atriði atvinnuleitar s.s. gerð ferilskrár, að finna styrkleika og áhugasvið hvers og eins, atvinnuviðtalið, hvar og hvernig er best að leita að atvinnu, að setja sér raunhæf markmið og gera plön þar sem ákveðinn “vinnutími” fer í atvinnuleit á hverjum degi en tíminn sem er afgangs getur farið í t.d. áhugamál eða sjálfboðastörf.
Farið verður ýmsa hluti sem lúta að sjálfstyrkingu, framkomu og farið í létta hópeflisleiki.
Farið verður yfir hvaða námsframboð er í boði fyrir þá sem vilja aðra möguleika, hvort sem það er bóknám, iðnnám eða námskeið.
Farið verður yfir hvaða sjálfboðavinna er í boði fyrir þá sem vilja láta gott af sér leiða í þeim tíma sem aflögu er.
Einnig er kynning á fjármálanámskeiðinu Klár í kreppu, stutt fræðsla frá ASÍ varðandi réttindi og skyldur á atvinnumarkaði og kynning á þjónustu frá Þjónustumiðstöðvum Reykjavíkurborgar.
Leiðbeinendur: Eva Líf Einarsdóttir og Orri Einarsson, starfsmenn Hins Hússins.
Námskeiðið er haldið í Hinu Húsínu og er samstarfsverkefni milli Vinnumálastofnun Höfuðborgarsvæðisins og Hins Hússins.
Námskeiðið er þrjá daga í röð, frá kl. 10-12.
Nánari upplýsingar í Hinu Húsinu í síma 411-5500 eða Vinnumálastofnun síma 515-4850