HH Sjónvarpsþáttur

 
HH er sjónvarpsþáttur sem er tekinn upp í Hinu Húsinu og er gerður fyrir ungt fólk af ungu fólki. Þátturinn fjallar um allt á milli himins og jarðar í ungmennamenningu og á meðal dagskráliða má nefna formannaflippið, mötuneytisgagnrýni framhaldsskólanna, jaðarsport dagsins og margt margt fleira.
 
Edda Sigfúsdóttir, 19 ára jafningjafræðari úr Jafningjafræðslunni, og Sindri Rafn Þrastarson, 20 ára framkvæmdastjóri SÍF, sjá um þáttarstjórn. Jón Heiðar Gunnarsson, verkefnastjóri hjá Hinu Húsinu, sér um leikstjórn, klippingu og dagskrágerð.
 
Þátturinn er sýndur á sjónvarpsstöðinni ÍNN og á netinu. Hægt er að horfa á þættina með því að smella hér: http://www.hitthusid.is/news.aspx?catID=2650
Svo eru einnig brot úr þættinum sett inn á youtube og facebook þannig að enginn ætti að missa af þessum skemmtilega þætti :)