Aðstaða

Hitt Húsið býður upp á fjölbreytta aðstöðu fyrir fundi og viðburði af ýmsu tagi.
 
Upplýsingamiðstöð
Í rými upplýsingamiðstöðvarinnar eru nettengdar tölvur, heitt á könnunni og ný dagblöð. Þar er hægt að sækja um sýningaraðstöðu í Gallerí Tukt og tónleikahald á Fimmtudagsforleikinn, auk annarra árvissra atburða. Í upplýsingamiðstöðinni eru plaköt og auglýsingar og hægt að fá allar þær upplýsingar sem tengjast menningarlífi ungs fólks á hverjum tíma.
 
Dómssalurinn
68m2 rými á þriðju hæð hússins. Þar er hægt að stilla upp borðum og stólum fyrir um 30-40 manns.
 
Fundarherbergi
á 2. hæð hússins sem tekur um 15-20 manns. Þar geta hópar, félagasamtök eða einstaklingar haldið fundi og fyrirlestra. Í fundarherberginu er sýningartjald, stór tússtafla og flettitafla.
 
Gallerí Tukt
Framsækið gallerí í hjarta miðborgarinnar, 27m2 bjart rými með stórum frönskum gluggum og er staðsett á 1. hæð hússins.
 
Kjallarinn
Í kjallaranum er góð aðstaða fyrir tónleikahald og ýmis konar uppákomur. Stórt opið svæði,  eldhús, borð og stólar. Aðgangur að hljóðkerfi.