Um Hitt Húsið
Upplýsingamiðstöð
Menning og listir
Ráðgjöf & stuðningur
Sérsveitin
Atvinnumál
HH vefsjónvarp
17. júní
Vítamin – Tækifæri fyrir unga atvinnuleitendurVítamín er 8 vikna námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 18 – 24 ára. Markmiðið er að styrkja og virkja þátttakendur og aðstoða þá að finna út hvað þeir vilja gera í framtíðinni og hvernig þeir geta framkvæmt það.....Hvað er gert á Vítamín ?Stuttar æfingar, lifandi fjármálafræðsla, hvernig kem ég hugmynd í framkvæmd, hvaða tækifæri eru erlendis, atvinnuleit, skapandi hugsun, markmið, leikur og margt fleira. Námskeiðið er í 8 vikur og er frá kl:10:00 – 15:00 frá mánudegi til fimmtudags. Þátttakendur fá léttan hádegismat á meðan á námskeiðinu stendur. Tækifæri fyrir þig til þess að fá reynslu á vinnumarkaðnum í gegnum starfskynningu, sjálfboðaliðastarf eða með því að vinna að eigin hugmynd í Hinu Húsinu. Nánari upplýsingar veita:Elísabet Pétursdóttir verkefnastjóri Vítamíns S:411-5517Agnar Jón Egilsson og Frímann Sigurðsson hópstjórar Vítamíns S:411-5519