Sumardagskrá Hins Hússins

 
 
Sumardagskrá Hins Hússins, miðstöðvar ungs fólks í Reykjavík, hefur verið hrint í framkvæmd og stendur hún yfir í júní og júlí. Dagskráin er fyrir öll ungmenni á aldrinum 17-24 ára og býður upp á atburði, námskeið, skemmtun, félagsskap og almenna virkni af margvíslegum toga.

Ungmenni, fagfólk í samfélaginu og starfsfólk Hins Hússins setti dagskránna saman og koma á fjórða tug einstaklinga að dagskránni sem er sjálfboðaverkefni leiðbeinenda og hópstjóra hvers atburðar.
 
Dagskráin skiptist í þrjá liði:
 
 
Liður 1 er hópastarf ungmenna fyrir ungmenni, þar sem ungmenni sem þegar eru virk í Hinu Húsinu hafa skipulagt mismunandi hópastarf sem þau sjálf leiða. Hóparnir starfa vítt og breytt um Reykjavík og fer staðsetning þeirra eftir starfseminni.

Sem dæmi má nefna körfubolta við Rimaskóla, strandblak og sjósund á Ylströndinni, pikknikkprjón á grænum svæðum og svo framvegis. Hóparnir hittast að minnsta kosti einu sinni í viku og er markmiðið að þátttakendur taki við stjórn hópanna eftir því sem líður á sumarið.
 
 
 
Engin skráning þörf, bara mæta á svæðið!
 

Liður 2 eru stutt námskeið og kynningar á vegum fagfólks. Starfsemin fer fram í Hinu Húsinu við Pósthússtræti og er hvert námskeið að meðaltali í þrjú skipti.

Sem dæmi um námskeið má nefna Stand-up námskeið, spuna, sirkusnámskeið, útileiki, physical performance, jóga, magadans, fatabreytingar og margt fleira. Leiðbeinendur eru leiðandi aðilar í hverri grein.

 

Liður 3 eru námskeið fyrir öll ungmenni á föstudags eftirmiðdögum í Hinu Húsinu sem fengið hafa nafnið Örvítamín.

Örvítamín er námskeið fyrir ungt fólk á aldrinum 16 – 24 ára. Markmiðið er að styrkja og virkja þátttakendur og aðstoða þá að finna út hvað þeir vilja gera í framtíðinni og hvernig þeir geta framkvæmt það.....
Hvað er gert á Örvítamín ?
Stuttar æfingar, lifandi fjármálafræðsla, hvernig kem ég hugmynd í framkvæmd, hvaða tækifæri eru erlendis, atvinnuleit, skapandi hugsun, markmið, leikur og margt fleira.


Einnig er hægt að hafa samband við upplýsingamiðstöð hússins í síma 411-5500 og fá upplýsingar um alla atburði, námskeið og hópastarfið.

(ath. dagskráin gæti breyst smávægilega og einnig munu ýmsir viðburðir bætast við)