Jafningjafræðslan



Jafningjafræðslan var stofnuð af framhaldsskólanemum árið 1996.
Hún hefur verið starfrækt síðan en hefur þó tekið breytingum í takt við tíðarandann. 

Starf Jafningjafræðslunnar er skipulagt og unnið af ungu fólki á aldrinum 17 - 25 ára. Unnið er eftir hugmyndafræðinni ungur fræðir ungan, þ.e að fræðsla frá jafningjum skili sér á annan hátt til ungs fólks heldur en fræðsla frá fullorðnum. Nýja heimasíða Jafningjafræðslunnar er www.jafningjafraedslan.is