Brú milli Menningarheima
Brú milli menningarheima er alþjóðlegur hópur ungs fólks sem á það sameiginlegt að búa á Íslandi. Hópurinn, sem ætlaður er fólki á aldrinum 16-25 ára, hittist vikulega á sunnudagskvöldum í Hinu húsinu. Allir eru velkomnir, Íslendingar ekki síður fólk af erlendu bergi brotið.
Dagskrá hópsins er fjölbreytileg, m.a. líflegar umræður, menningarkvöld, ferðir, tónleikar og fleira sem meðlimir hópsins hafa áhuga á. Leiðbeinendur Brúarinnar eru Ragnheiður Harpa Leifsdóttir og Eva Funk.
Hægt er að skrá sig á póstlista Brúarinnar og fá tölvupóst eða sms-skilaboð um það sem er á döfinni með því að senda tölvupóst með upplýsingum um netfang og/eða símanúmer á
isbruin@yahoo.com
Nánari upplýsingar um Brúnna má finna hér:
http://isbruin.blogspot.com