Atvinnuleit


Góð ráð í atvinnuleitinni
 
Heimasíður fyrirtækja
Farðu gjarnan inn á heimasíður fyrirtækjanna og fylltu út þar til gert skráningarblað sem er á rafrænu formi (flest þeirra eru með slíkt). Þá eruð þið komin inn í gagnagrunn fyrirtækisins.
 
Ferilskrá
Því næst er sniðugt að útbúa ferilskrá (cv) með mynd, taka saman meðmæli og prófskírteini (ef þeim er til að dreifa). Best er að skanna inn meðmælin og prófskírteinið og senda með ferilskránni í tölvupósti á einhvern innan fyrirtækisins sem hefur með ráðningar að gera. Í tölvupóstinum ávarpið þið viðkomandi með nafni og segið stuttlega frá ykkur og takið fram hvernig starfi þið eruð að leita að. Í slíkum tölvupósti gætuð þið einnig óskað eftir viðtali.
 
Sendu persónulegt bréf og ferilskrá
Með því að nota netið með þessum hætti er hægt að auka möguleikana mjög mikið á styttri tíma en ella væri hægt. Þegar öll gögnin eru komin á rafrænt form er svo hægt að senda staðlað bréf með tölvupósti á ýmis fyrirtæki með fylgiskjölum eins og ferilskrá, prófskírteinum og meðmælum. Þannig er hægt að ná til mun fleiri fyrirtækja en annars væri mögulegt. Munið samt að best er að fara inn á heimasíðu fyrirtækisins fyrst og kanna hver sé starfsmannastjóri eða hver hafi með ráðningar að gera. Sendið tölvupóstinn á þann aðila innan fyrirtækisins og ávarpið viðkomandi með nafni. Ef þessi leið er farin er mun líklegra að þið fáið svar heldur en ef þið sendið póstinn á almennt netfang fyrirtækisins/stofnunarinnar.
 
Fylgdu umsókninni eftir
Svo er náttúrulega mjög áhrifaríkt að hringja og fylgja málunum eftir. Jafnvel mæta á staðinn. Það má líka byrja á því og sleppa öllu hinu en sú aðferð er náttúrulega mun tímafrekari. En best er samt að gera hvoru tveggja og þá byrja á netinu og fara svo yfir í hitt.
 
Skoðaðu blöðin
Ekki þarf að taka fram að á meðan atvinnuleit fer fram er nauðsynlegt að fylgjast vel með atvinnuauglýsingum í dagblöðum, Mogganum (atvinnublaðið á sunnudögum), DV og Fréttablaðinu. Ef þið tímið ekki að kaupa þessi blöð getið þið nálgast þau á bókasöfnum og hér hjá Vinnumiðlun ungs fólks. Einnig er hægt að nálgast atvinnuauglýsingar Moggans og Fréttablaðsins á vefjunum www.mbl.is og www.visir.is
 
---
 
Ráðningarþjónustur
Á Íslandi eru fjölmargar ráðningaþjónustur. Flestar þeirra eru einkareknar en einnig reka ríkið og sveitarfélögin atvinnumiðlanir. Ríkið rekur Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins sem er til húsa að Engjateigi 11 í Reykjavík. Í Vinnumiðlun Höfuðborgarsvæðisins skráir þú þig atvinnulausa/n og þar er einnig hægt að fá upplýsingar um laus störf.
 

ATVINNUÁSTAND